Á SPRENGISANDI

AmRíðum, ríðum, rekum yfir sandinn,
Erennur sól á E7bak við Arnarfell.
AmHér á reiki' er margur óhreinn andinn
Eúr því fer að E7skyggja á jökulsvell.

AmDrottinn Dmleiði drösulinn miAmnn,
E7drjúgur verður síðasti AmáfangE7inn.
AmDrottinn Dmleiði drösulinn miAmnn,
E7drjúgur verður síðAmasti áE7fangAminn.

Þei þei, þei þei. Þaut í holti tófa,
þurran vill hún blóði væta góm,
eða líka einhver var að hóa
undarlega digrum karlaróm.

:,:Útilegumenn í Ódáðahraun
eru kannski' að smala fé á laun.:,:

Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn,
rökkrið er að síga' á Herðubreið.
Álfadrotting er að beisla gandinn,
ekki' er gott að verða' á hennar leið.

:,:Vænsta klárinn vildi' ég gefa til
að vera kominn ofan í Kiðagil.:,:

Lag:         Sigvaldi Kaldalóns
Texti:       Grímur Thomsen


Sendið mér gjarnan póst ef þið finnið villur í textunum
en takið gjarnan fram við hvaða texta er átt.