GAKKTU BLJÚGUR
Gakktu bljúgur á böðlanna fund
betlaðu af þeim miskunn enda standi þeim allt þitt til
boða
sannfæring gildi og siðir allir
ef þeir sjái í gegnum fingur við þig leysi þig
frá verðskulduðum voða
gakktu boginn á böðlanna fund
biddu grátandi um náð þú vildir segðu engan
styggja
spyrðu hvað svo þóknist þeim
hvort þér sé sæmra á bakinu eða maganum
að liggja
er traðka þeir á þér takið frekar hinn hann
á það skilið
hann tekur engum sönsum segðu og sættir sig aldrei við spilið
Skreiðstu brotinn á böðlanna fund
bjóddu þeim allt semað áttu og allir þínir
vinir
sárbændu um að gefa þér grið
því þú gerðir ekkert nema í bestu meiningu
það voru allir hinir
þiggðu flatur böðlanna boð
og hlýddu bönnum þeirra af kostgæfni og vísaðu
veglyndur á aðra
við þeim hlæðu og hræðstu þá í
senn
berðu hundsins aðalsmerki gakktu sem lengst í að fletta'onaf
og flaðra
glaður vertu er traðka á þér þeir gera það
sem er þér fyrir bestu
gerðu þér það upp uns það er ekta þakklætið
því þakklæti er fyrir mestu
Vertu breiður í böðlanna hóp
bentu þeim á alla þá sem eru ekki á réttum
kanti
þú þekkir þá best því á
þeirra öxl gréstu
er á þinn rétt fannst þér gengið og grátt
leikinn af lögleyfðum fanti
efast aldrei um að í þeirra klíku
eigirðu best heima og farðu sem framast
vertu bæði auga þeirra og eyru
uns hatrið á sjálfum þér er þínu
eigin eðli tamast
blóðug og meidd og marin en þakklát kossum heitum
maklega vöndinn heiðra skalt' án afláts uns orðinn
ert að þræli akfeitum
Flytjandi: Megas
Lag: Megas
Texti: Megas